Brekkukot 1 - ósk um endurskoðun á hitaveitureikning 20190001022.

Málsnúmer 201903038

Vakta málsnúmer

Veitu- og hafnaráð - 84. fundur - 03.04.2019

Með bréfi sem dagsett er 8. mars 2019, óskar Finnur Yngvi Kristinsson eftir því að reikningur frá Hitaveitu Dalvíkur verði endurskoðaður vegna vatnstjóns sem varð að Brekkukoti, Svarfaðardal. Fram kom í bréfinu að tryggingafélag hans kemur ekki til með að taka tillit til umrædds reiknings í tjónamati sínu vegna tjóninsins sem varð á húseigninni.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að reikningurinn taki mið af sögulegri notkun hússins og felur sviðsstjóra að ganga frá reikningi með þeim hætti.