Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; umsókn um tækifærisleyfi - Kaldi

Málsnúmer 201901080

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 895. fundur - 07.02.2019

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, rafbréf dagsett þann 28. janúar 2019, þar sem óskað er eftir umsögn hvað varðar umsókn frá Bruggsmiðjunni Kalda ehf., kt. 541205-1520, um tækifærisleyfi vegna bjórhátíðar þann 1. mars 2019.

Fyrir liggja jákvæðar umsagnir frá byggingafulltrúa og slökkviliðsstjóra.

Til umræðu ofangreint.

Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreint leyfi.