Frá Eyþingi; Fjármögnun samgönguáætlana

Málsnúmer 201901074

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 895. fundur - 07.02.2019

Tekið fyrir erindi frá Eyþingi, rafbréf dagsett þann 20. janúar 2019, og varðar umsögn um fjármögnun samgöngumannvirkja. Vakin er athygli á minnisblaði gefið út af meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar um áherslur sínar um samgönguáætlun 20. desember s.l. þar sem m.a. eru reifaðar hugmyndir um nýjar fjármögnunarleiðir. Stjórn Eyþings hefur ekki gefið út umsögn vegna þessa en mun taka málið upp á fundi stjórnar þann 15. febrúar n.k.

Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.