Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsögn Stiklur ehf kt. 640512-0910

Málsnúmer 201812094

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 892. fundur - 10.01.2019

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, rafbréf dagsett þann 21. desember 2018, þar sem óskað er umsagnar um umsókn fyrir Stiklur ehf. kt, 640512-0910, Syðra-Holti, vegna rekstrarleyfis til sölu gistingar, flokkur II, gististaður án veitinga / minna gistiheimili.

Með fundarboði fylgdi umsögn byggingafulltrúa án athugasemda.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn með fyrirvara um umsögn slökkviliðsstjóra og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.