Fjárhagsáætlun 2018; heildarviðauki IV

Málsnúmer 201812039

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 890. fundur - 13.12.2018

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti heildarviðauka IV við fjárhagsáætlun 2018 þar sem búið er að bæta við viðaukum samkvæmt málum 201811072, 201811071, 201811141, 20181142, 201812040 og leiðrétting á 201809107. Um er að ræða viðauka nr. 39-44 ásamt leiðréttingu á viðauka nr. 34.

Áætluð niðurstaða Samantekið A- og B-hluta er fyrir árið 2018 kr. 158.127.000 og þar af A-hluti samtals kr. 114.658.000. Áætluð lántaka að upphæð 70 m.kr. vegna Eignasjóðs er tekin út og áætlaðar fjárfestingar eru kr. 291.690.000 og hafa lækkað um 6,4 m.kr. frá heildarviðauka III.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindan heildarviðauka IV við fjárhagsáætlun 2018 og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn - 308. fundur - 18.12.2018

Á 890. fundi byggðaráðs þann 13.12.2018 var eftirfarandi bókað:
"Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti heildarviðauka IV við fjárhagsáætlun 2018 þar sem búið er að bæta við viðaukum samkvæmt málum 201811072, 201811071, 201811141, 20181142, 201812040 og leiðrétting á 201809107. Um er að ræða viðauka nr. 39-44 ásamt leiðréttingu á viðauka nr. 34. Áætluð niðurstaða Samantekið A- og B-hluta er fyrir árið 2018 kr. 158.127.000 og þar af A-hluti samtals kr. 114.658.000. Áætluð lántaka að upphæð 70 m.kr. vegna Eignasjóðs er tekin út og áætlaðar fjárfestingar eru kr. 291.690.000 og hafa lækkað um 6,4 m.kr. frá heildarviðauka III. Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindan heildarviðauka IV við fjárhagsáætlun 2018 og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."

Til máls tók:
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum.

Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhjóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu að heildarviðauka IV við fjárhagsáætlun 2018 eins og hann liggur fyrir.