Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn um rekstrarleyfi til veitingu veitinga; Bruggsmiðjan Kaldi

Málsnúmer 201811136

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 888. fundur - 29.11.2018

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dags. 26.11.2018, beiðni um umsögn vegna umsóknar Agnesar Önnu Sigurðardóttur fyrir hönd Bruggsmiðjunnar Kalda, Öldugötu 22, 621 Dalvík um rekstrarleyfi í Flokki II - umfangslitlir áfengisveitingastaðir.
Byggðaráð gerir ekki athugasemd við umsóknina en með fyrirvara um umsagnir frá byggingafulltrúa og slökkviliðsstjóra Dalvíkurbyggðar.