Frá Eyþingi; Uppgjör vegna breytinga á A deild Brúar lífeyrissjóðs

Málsnúmer 201808018

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 874. fundur - 23.08.2018

Tekið fyrir erindi frá Eyþingi, bréf dagsett þann 8. ágúst 2018, er varðar uppgjör vegna breytinga á A deild Brúar Lífeyrissjóðs. Eyþing leitar til aðildarfélaganna til að unnt sé að ljúka uppgjöri við sjóðinn vegna varúðar- og jafnvægissjóðs að upphæð kr. 7.199.806. Hlutdeild Dalvíkurbyggðar samkvæmt reikningi sem borist hefur er kr. 445.828.

Til umræðu ofangreint.





Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að verða við erindi Eyþings og greiðslu á ofangreindum reikningi að upphæð kr. 445.828. Bókast á deild 21800.