Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Landsþing 2018 - gisting

Málsnúmer 201805026

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 867. fundur - 11.05.2018

Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 4. maí 2018, og varðar gistingu vegna landsþings Sambandsins sem verður haldið á Akureyri dagana 26. - 28. september 2018.

Dalvíkurbyggð á rétt á að senda 2 fulltrúa ásamt framkvæmdastjóra.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir 3 herbergjum fyrir Dalvíkurbyggð fyrir 2 fulltrúa og framkvæmdastjóra.

Byggðaráð - 874. fundur - 23.08.2018

Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 20. júlí 2018, þar sem boðað er til XXXII. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 26. til 28. september 2018 á Akureyri.
Lagt fram til kynningar.