Reglur í málefnum fatlaðra

Málsnúmer 201803099

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 217. fundur - 10.04.2018

Tekið var fyrir drög að reglum þjónustuhóps í málefnum fatlaðra fyrir sveitarfélögin Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð sem fara með sameiginlegan rekstur á málaflokknum. Um er að ræða reglur um stuðningsfjölskyldur, skammtímavistun, dagþjónustu, styrki samkvæmt 27.grein málefna fatlaðra og gjaldskrá vegna styrkveitinga 27. greinar.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum að leggja lokahönd á reglurnar samkvæmt umræðum á fundi. Tekið fyrir á næsta fundi.