Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Vinátta í verki - Grænland

Málsnúmer 201707018

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 827. fundur - 20.07.2017

Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, rafpóstur dagsettur þann 27. júní 2017, þar sem komið er á framfæri meðfylgjandi styrktarbeiðni frá landssöfnuninni Vinátta í verki, vegna hamfaranna sem urðu á Grænlandi 18. júní s.l.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að veita styrk að upphæð kr. 100.000, vísað á deild 21510.