Frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar sérþarfir, 438. mál, og frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, 439. mál.

Málsnúmer 201706147

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 210. fundur - 12.09.2017

Erindi barst frá nefndarsviði Alþingis dags. 29. júní 2017 vegna frumvarps til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar sérþarfir, 438. mál og frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, 439. mál. Ofangreind þingmál voru send til umsagnar 3. maí sl. Frumvörpin hlutu ekki afgreiðslu fyrir þingfrestun í vor en þar sem velferðarnefnd hefur málin til umræðu í sumar gefst umsagnaraðilum kostur á að senda frekari umsögn eða viðbótarumsögn við málið.
Lagt fram til kynningar