Tillaga að frestun funda sveitarstjórnar vegna sumarleyfa 2017. Til afgreiðslu.

Málsnúmer 201706088

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 293. fundur - 20.06.2017

Til máls tók 2. varaforseti sveitarstjórnar og leggur fram eftirfarandi tillögu:

Tillaga um frestun funda sveitarstjórnar

Með vísan til 8.gr. í Samþykktum um stjórn Dalvíkurbyggðar samþykkir sveitarstjórn að fresta fundum sínum í júlí og ágúst 2017.

Jafnframt er byggðaráði Dalvíkurbyggðar falin fullnaðarafgreiðsla þeirra mála sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu, sbr. 31.gr. V. kafla Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar, frá og með 21. júní 2017 til og með 31. ágúst 2017.


Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu 2. varaforseta um sumarleyfi sveitarstjórnar.