Frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Tilboð í innanhússbreytingar á Víkurröst 2017.

Málsnúmer 201706013

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 824. fundur - 08.06.2017

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl. 13:00.

Fimmtudaginn 1. júní s.l. voru opnuð tilboð í breytingar og viðhald í Víkurröst.

Tvö tilboð bárust frá einum aðila:

Tréverk ehf. kr. 11.216.000
Tréverk ehf. frávikstilboð kr. 9.890.000 með skiladegi 15. desember 2017.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs að ganga til samninga við Tréverk á grundvelli hærra tilboðsins með afhendingardegi í ágúst.