Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsókn um tækifærisleyfi - Höfði Svarfaðardal

Málsnúmer 201705145

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 823. fundur - 01.06.2017

Tekinn fyrir rafpóstur frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, dagsettur þann 18. maí 2017 þar sem óskað er umsagnar um umsókn frá Eydísi Ósk Jónsdóttur, kt. 121082-5359, sem ábyrgðarmaður fyrir Kristjönu Lóu Sölvadóttur, kt. 270190-3169, vegna tímabundins tækifærisleyfi til skemmtanahalds vegna dansleiks laugardaginn 10. júní n.k. frá kl. 23:00 til kl. 03:00 í Höfða Svarfaðardal.

Fyrir liggja umsagnir frá slökkviliðsstjóra og byggingafulltrúa.
Byggðaráð gerir ekki athugasemd við ofangreinda umsókn.