Réttur þinn - mikilvægar upplýsingar fyrir erlendar konur á Íslandi

Málsnúmer 201612058

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 204. fundur - 13.12.2016

Tekið fyrir bréf frá Jafnréttisstofu dags. 30. nóvember 2016. Jafnréttisstofa gefur út bæklinginn Réttur þinn sem er sérstaklega ætlaður sem upplýsinga- og leiðbeiningarbæklingur fyrir erlendar konur sem dveljast á Íslandi. Í bæklingnum er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um jafnan rétt kynja s.s. dvalarleyfi, skilnaði, forsjármál, fjármál,mansal. Bæklingurinn er gefinn út á íslensku, ensku, pólsku, spænsku, taílensku, rússnesku og arabísku. Eintök bæklingsins er að finna hjá félagsþjónustu
Lagt fram til kynningar.