Drög að leiðbeinandi reglum um sérstakan húsnæðisstuðning

Málsnúmer 201612054

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 204. fundur - 13.12.2016

Tekin fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga frá 30.nóvember 2016 um drög að leiðbeinandi reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum félagsþjónustu að gera drög að reglum varðandi sérstakar húsaleigubætur Dalvíkurbyggðar og að þær verði teknar fyrir á næsta fundi.

Samþykkt með 5 greiddum atkvæðum.

Félagsmálaráð - 205. fundur - 10.01.2017

Lagður var fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er barst 3. janúar 2017. Þar kemur fram að Velferðarráðuneyti hafi gefið út með formlegum hætti leiðbeinandi reglur um nýtt kerfi húsnæðisstuðnings. Breyting hefur orðið á reglunum frá því þær voru drög og sveitarfélög á landinu voru að búa til sínar reglur um sérstakan húsnæðisstuðning og er veigamesta breytingin viðmiðunarfjárhæðir skv. 8. gr. en þær fjárhæðir hafa verið hækkaðar um 13,4% frá drögunum. Eftir því sem næst verður komist er þessi hækkun viðmiðunarfjárhæða talin vera í samræmi við þá breytingu sem varð nú um áramótin á lífeyrisgreiðslum frá TR. Athygli vekur hins vegar að félags- og húsnæðismálaráðherra mun ekki ætla að framfylgja því lagaákvæði sem skyldar hann til að hækka grunnfjárhæðir húsnæðisbóta við afgreiðslu fjárlaga ár hvert með tilliti til þróunar launa, verðlags og efnahagsmála. Er því komin upp sú staða að öryrki sem verður að reiða sig á örorkulífeyri til framfærslu fær skerðingu á grunnhúsnæðisbótum, þ.e. tekjur hans eru taldar of miklar til þess að fá fullan húsnæðisstuðning frá ríkinu. Á hinn bóginn telur ráðherra sig þess umkominn að setja þrýsting á sveitarfélögin að bæta leigjendum - öryrkjum og öðrum - upp þessa skerðingu ríkisins með því að hækka sérstaka stuðninginn til viðkomandi. Hér er um að ræða tilraun til þess að breyta þeirri verkaskiptingu sem umsamin er milli ríkis og sveitarfélaga við innleiðingu á nýju kerfi húsnæðisstuðnings. Málið verður tekið upp í samráðsnefnd um húsnæðismál og kallað eftir endurskoðun enda um grundvallaratriði að ræða sem vart getur talist á forræði ráðherra í starfsstjórn að ákveða upp á sitt eindæmi. Þessi nýja útgáfa gefur því að mati sambandsins ekki tilefni til breytinga að svo stöddu á þeim grundvelli sem sveitarfélög hafa miðað við í vinnu við sínar reglur, þ.e. þær viðmiðunarfjárhæðir sem áður höfðu birst í drögum. Undirstrikað er að leiðbeinandi reglur eru ekki bindandi fyrir sveitarfélögin.







Lagt fram til kynningar.