Frá Greiðslustofu húsnæðisbóta; Húsnæðisbætur - Heimasíða - Reiknivél - Ný þjónustuskrifstofa

Málsnúmer 201611089

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 804. fundur - 17.11.2016

Tekið fyrir erindi frá Greiðslustofu Húsnæðisbóta, rafbréf dagsett þann 11. nóvember 2016, þar sem fram kemur að þann 1. janúar 2017 munu ný lög um húsnæðisbætur taka gildi og Greiðslustofa húsnæðisbóta tekur við því hlutverki að greiða húsnæðisbætur fyrir landið allt. Þjónustuskrifstofan á Sauðárkróki hóf formlega starfsemi sína 16. nóvember s.l. og áætlað er að opna fyrir umsóknir þann 21. nóvember n.k.



Fram kemur að það sé talið mikilvægt að eiga beint samtal við starfsfólk sveitarfélaga sem hefur dýrmæta þekkingu og reynslu í framkvæmd húsaleigubóta. Óskar er því eftir með formlegum hætti að hefja þessar samræður.



Vísað til félagsmálasviðs.