Reglur um styrkt til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka

Málsnúmer 201611064

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 804. fundur - 17.11.2016

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að reglum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og skv. 7 gr. reglugerðar um fasteignaskatts nr. 1160/2005. Um er að ræða óbreytta tillögu á milli ára. Um er að ræða heimildarákvæði í lögum en ekki skyldu sveitarfélaga að veita umrædda styrki.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar reglur eins og þær liggja fyrir.