Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2016-2019, 765. mál.

Málsnúmer 201606055

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 200. fundur - 16.06.2016

Lagt var fram til kynningar erindi frá Nefndarsviði Alþingis mál nr. 765 dags. 13. júní 2016. Óskað er umsagnar um þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2016-2019, 765. mál.
Lagt fram til kynningar

Byggðaráð - 780. fundur - 16.06.2016

Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 13. júní 2016, þar sem allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis óskar umsagnar um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2016-2019, 765. mál. Óskað er eftir umsögn eigi síðar en 25. júlí n.k.
Lagt fram til kynningar.