Umsókn um framkvæmdarleyfi vegna lagningu ljósleiðaralagna um Dalvík sumarið 2016.

Málsnúmer 201602064

Vakta málsnúmer

Umhverfisráð - 274. fundur - 04.03.2016

Með innsendu erindi dags. 8. febrúar 2016 óskar Gunnar Björn Þórhallsson fyrir hönd Tengis hf eftir framkvæmdarleyfi vegna lagningar ljósleiðaralagna um Dalvík sumarið 2016.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við erindið og felur sviðsstjóra að veita umbeðið framkvæmdarleyfi.