Fasteignaskattur- og fasteignagjöld 2016

Málsnúmer 201511045

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 758. fundur - 12.11.2015

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi eftirfarandi tillaga að álagningu fasteigna - og þjónustugjalda 2016 til sveitarstjórnar:



"Álagningin byggir á fasteignamati samkvæmt Landsskrá fasteigna frá 1. febrúar 2015.



Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis: A-skattflokkur

Íbúðarhús og sumarbústaðir ásamt lóðum og lóðarréttindum, erfðafestulönd og jarðeignir sem eingöngu eru nýttar til landbúnaðar, mannvirki og útihús á bújörðum.

Fasteignaskattur A 0,49% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt á milli ára).

Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).

Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá.)

Sorphirðugjald kr. 34.638 ,- á íbúð (var kr. 31.982 á íbúð).





Fasteignagjöld stofnana: B-skattflokkur

Sjúkra- og heilbrigðisstofnanir, skólar, íþróttahús o.fl. samanber reglugerð um fasteignaskatt nr.1160/2005

Fasteignaskattur B 1,32% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt á milli ára).

Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).

Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).



Fasteignagjöld atvinnuhúsnæðis: C-skattflokkur

Aðrar fasteignir en þær sem falla undir A og B flokk t.d. verslunar-, iðnaðar-, og skrifstofuhúsnæði ásamt lóðum og lóðarréttindum.

Fasteignaskattur C 1,65% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt á milli ára).

Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).

Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).



Lóðarleiga

Lóðarleiga íbúðahúsalóða 1,28% af fasteignamati lóðar (óbreytt á mill ára).

Lóðarleiga atvinnulóða 2,90 % af fasteignamati lóðar (óbreytt á milli ára).

Lóðarleiga ræktarlands 3,00% af fasteignamati lóðar (óbreytt á milli ára).



Vatnsgjald

Af öllum fasteignum í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar, sem liggja við vegi eða opin svæði þar sem vatnsæðar liggja, ber að greiða vatnsgjald árlega til Vatnsveitu Dalvíkur og skal það vera eftirfarandi:

a) Vatnsgjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 8.634,07 kr. pr. íbúð og 205,05 ,- kr. pr. fermetra húss. (var fast gjald 8.184,40,- kr. pr. íbúð og 193,52 ,- kr. pr. fermetra húss.)

b)
Vatnsgjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 17.268,13 kr. pr. eign og 205,05 kr. pr. fermetra húss. (var fast gjald 16.296,80,- kr. pr. eign og 193,52 ,- kr. pr. fermetra húss.)

c)
Árleg vatnsgjöld fyrir sveitabýli, eitt íbúðarhús og útihús á sömu kennitölu skulu vera eitt fastagjald og fullt fermetragjald af íbúðarhúsinu og 1/2 fermetragjald af öðrum húsum. (óbreytt)

d)
Álagning skv. a, b. og c. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,4% eða lægra en 0,2% af fasteignarmati allra húsa og lóða. (óbreytt).



Fráveitugjald

Fráveitugjald skal greitt af öllum mannvirkjum sem tengd eru fráveitukerfum sveitarfélagsins.

a)
Fráveitugjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 12.951,10 kr. pr. íbúð og 291,40 kr. pr. fermetra húss. (var gjald 12.222,60 ,- kr. pr. íbúð og 275,01,- kr. pr. fermetra húss)

b)
Fráveitugjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 32.377,74 kr. pr. eign og 291,40 kr. pr. fermetra húss. (var fast gjald 30.556, 49,- kr. pr. eign og 275,01 ,- kr. pr. fermetra húss.)

c)
Árlegt rotþróargjald verði, fast gjald kr 12.951,10 kr. pr. losunarstað og þar sem tæming á sér stað þriðja hvert ár er kr. 11.872,90 (var kr. 12.222,60 og kr. 11.205,05)

d)
Álagning skv. a og b. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,47% eða lægra en 0,25% af fasteignarmati allra húsa og lóða (var 0,47% og 0,25%).



Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda

Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu talsins og eru gjöldin innheimt frá 5. febrúar til 5. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga."



Til umræðu ofangreint.



Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindri tillögu til sveitarstjórnar.