Frá innanríkisráðuneytinu; Drög að nýrri reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga til umsagnar

Málsnúmer 201510072

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 755. fundur - 22.10.2015

Tekinn fyrir rafpóstur frá innanríkisráðuneytinu, dagsettur þann 16. október 2015, þar sem fram kemur að reikningsskila- og upplýsinganefnd hefur unnið drög að endurskoðari reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Reglugerðardrögin eru nú til kynningar og er unnt að senda ráðuneytinu umsagnir til og með 30. október n.k.
Lagt fram til kynningar.