Skýrsla um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum til umsagnar

Málsnúmer 201510043

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 192. fundur - 13.10.2015

Félagsmálastjóri leggur fram rafpóst dags. 05.10.2015 frá Innanríkisráðuneytinu þar sem vakin er athygli á að til umsagnar er nú hjá innanríkisráðuneytinu skýrsla um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum. Í skýrslunni er lagt til að lögfest verði ákvæði í barnalögum sem heimili skipta búsetu barns á grundvelli staðfests samkomulags foreldra, að uppfylltum skilyrðum.
Lagt fram til kynningar