Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Ágóðahlutagreiðsla 2015.

Málsnúmer 201510036

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 754. fundur - 16.10.2015

Tekið fyrir erindi frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 6. október 2015, þar sem fram kemur að á aðalfundi fulltrúaráðs EBÍ sem haldinn var 23. september s.l. var samþykkt að greiða 50 m.kr. af hagnaði félagsins til aðildarfélaganna í formi ágóðahlutar. Hlutdeild Dalvíkurbyggðar í Sameignarsjóði EBÍ er 1,684% og greiðsla ársins þann 16. október n.k. verður þá kr. 842.000.
Lagt fram til kynningar.