Frá Dalvíkurkirkju; Fjárhagsáætlun 2016; Beiðni um styrk vegna fasteignagjalda

Málsnúmer 201509069

Vakta málsnúmer

Menningarráð - 54. fundur - 28.10.2015

Kolbrún Pálsdóttir fyrir hönd sóknarnefndar Upsasóknar óskar eftir sambærilegum styrk vegna fasteignagjalda fyrir árið 2016 og undanfarin ár.

Menningarráð samþykkir styrkinn en minnir á að félög og einstaklingar sæki um fyrir auglýstan umsóknarfrest ár hvert.