Frá íþrótta - og æskulýðsfulltrúa; Ósk um heimild til sölu á Mitsubishi L200 biðfreið Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar

Málsnúmer 201508017

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 742. fundur - 20.08.2015

Tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, bréf dagsett þann 12. ágúst 2015, þar sem óskað er eftir leyfi og umboði til að selja Mitsubishi L200 bifreið vinnuskólans með fastanúmerinu YG-203. Bifreiðin hefur verið tekin úr notkun og númer lögð inn. Bifreiðin er árgerð 1991 og hefur ekki verið notuð síðan haust 2014. Ef heimild fæst yrði bifreiðin auglýst til sölu á heimasíðu Dalvíkurbyggðar og óskað eftir tilboðum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að veita íþrótta- og æskulýðsfulltrúa heimild og umboð til að auglýsa og selja ofangreinda bifreið.