Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Beiðni um umsögn - Fiskidagurinn mikli

Málsnúmer 201507051

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 741. fundur - 06.08.2015

Guðmundur St. vék af fundi vegna vanhæfis kl. 8:59
Lagt fram bréf sýslumannsins á Norðurlandi eystra frá 15.júlí sl. Beiðni um umsögn vegna Fiskidagsins mikla.

Umsögn byggingafulltrúa Dalvíkurbyggðar, Barkar Þórs Ottóssonar, liggur fyrir.
Byggðaráð samþykkir umsögn byggingafulltrúa með 2 samhljóða atkvæðum.
Guðmundur St. kom inn á fund kl. 9:02

Umhverfisráð - 266. fundur - 06.08.2015

Til kynningar umsögn byggingarfulltrúa vegna Fiskidagsins mikla 2015.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umrætt leyfi.