Frá Þjóðskrá Íslands; Fasteignamat 2016

Málsnúmer 201506134

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 740. fundur - 09.07.2015

Tekið fyrir bréf frá Þjóðskrá Íslands, dagsett þann 24. júní 2015, þar sem fram kemur að fasteignamats allra fasteigna ber að endurmeta 31. maí ár hvert. Þjóðskrá Íslands skal kynna sveitarfélögum og eigendum fasteigna niðurstöður endurmatsins í júní mánuði og tekur nýtt fasteignamat gildi næsta 31. desember, sbr. 32. gr. laga nr. 6/2001, um skráningu og mat fasteigna. Með vísan til þess sendir Þjóðskrá Íslans meðfylgjandi lista þar sem fram kemur heildarfjárhæð gildandi fasteignamats og þar af landsmats 2015 og heildarfjárhæð nýja matsins sem og landsmats 2015 miðað við stöðuna 31. maí s.l. ásamt hlutfallsbreytingu milli ára.
Lagt fram til kynningar.