Frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa; Ósk um heimild til sölu á bifreið Vinnuskóla

Málsnúmer 201505162

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 737. fundur - 11.06.2015

Tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 28. maí 2015, þar sem óskað eftir leyfi og umboði til að selja Toyota Hilux bifreið vinnuskólans með fastanúmerinu KR-946. Bifreiðin hefur verið tekin úr notkun og númer lögð inn. Bifreiðin er árgerð 1989 og stóðst ekki skoðun á síðasta ári. Íþrótta - og æskulýðsfulltrúi hefur fengið fyrirspurnir um hvort hægt sé að kaupa bílinn og ef heimild fæst verður bíllinn auglýstur á heimasíðu Dalvíkurbyggðar þar sem óskað verður eftir tilboðum.
Byggðaráð samþykkkir samhljóða með 3 atkvæðum að veita íþrótta- og æskulýðsfulltrúa ofangreint leyfi og umboð skv. beiðni.