Frá Greiðri leið ehf.; Aðalfundur Greiðrar leiðar 2015.

Málsnúmer 201505107

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 735. fundur - 21.05.2015

Tekinn fyrir rafpóstur frá framkvæmdastjóra Eyþings og stjórnarformanni Greiðrar leiðar ehf, dagsettur þann 15. maí 2015, þar sem með bréfi er boðað til aðalfundar Greiðrar leiðar ehf. föstudaginn 29. maí n.k. að Hafnarstræti 91 á Akureyri og hefst fundurinn kl. 11:00.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri sæki fundinn og fari með umboð Dalvíkurbyggðar á fundinum.