Starfsemi félagsmiðstöðvar í Dalvíkurbyggð

Málsnúmer 201502229

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og æskulýðsráð - 66. fundur - 03.03.2015

Farið var almennt yfir stöðu á starfsemi félagsmiðstöðvar og 16+ starfi í Víkurröst. Heildar endurskipulagning stendur nú yfir með það að markmiði að efla fagstarf og festa Víkurröst frekar í sessi sem frístundahús. Áætlað er að þeirri vinnu ljúki í lok apríl og verður hún þá kynnt ráðinu.