Leyfi til lendinga þyrlna á landi sveitarfélagsins.

Málsnúmer 201502201

Vakta málsnúmer

Umhverfisráð - 261. fundur - 13.03.2015

Með rafpósti dags. 23.02.2015 óskar Jökull Bergmann fyrir hönd Icelandic Mountain Guide eftir leyfi til að lenda þyrlum í landi sveitarfélagsins.
Umhverfiráð hefur leitað álits hlutaðeigandi aðila og hefur fengið jákvæð svör við innsendu erindi. Sviðsstjóra falið að ræða við umsækjanda um lendingar á Böggvisstaðarsandi og breytingu á lendingastað við skíðasvæði.