Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og slökkviliðsstjóra; Sala bifreiðar.

Málsnúmer 201501075

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 723. fundur - 15.01.2015

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og slökkviliðsstjóra, bréf dagsett þann 13. janúar 2015, þar sem óskað er eftir heimild frá stjórn Eignasjóðs til að selja bifreiðna A 7128, fasnt. BL497, sem er Chevrolet Blazer bifreið árgerð 1970, sem ný bifreið hefur leyst af hólmi. Óskað er jafnframt eftir tillögu að fyrirkomulagi við sölu á bifreiðinni.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að heimila sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og slökkviliðsstjóra að selja ofangreinda bifreið og að sömu aðilar hafi umsjón með auglýsingu og söluferli þar sem óskað verði eftir tilboðum fyrir tiltekinn tíma.