Frá Ungmennasambandi Eyjafjarðar; Styrkbeiðni vegna kjörs íþróttamanns UMSE 2014.

Málsnúmer 201501063

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 723. fundur - 15.01.2015

Tekið fyrir erindi frá Ungmennasambandi Eyjafjarðar, bréf dagsett þann 8. janúar 2015, þar sem fram kemur að kjöri íþróttamanns UMSE 2014 verður lýst að Rimum í Svarfaðardal 22. janúar kl. 18:00. UMSE óskar eftir styrk til þess að halda viðburðinn en beinn kostnaður er áætlaður k. 305.000. Fulltrúum Dalvíkurbyggðar er einnig boðið að vera viðstaddir við kjör íþróttamanns UMSE 2014.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum styrk að upphæð kr. 125.000 sem samsvarar kostnaði við húsaleigu og veitingar. Vísað á lið 21-50-4960.