Fjárhagsáætlun 2015; Frá Kristni Boga Antonssyni og Guðrúnu Pálínu Jóhannsdóttur; merkingar, umhirða og ýmis umhverfismál.

Málsnúmer 201409007

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 706. fundur - 04.09.2014

Undir þessum lið vék sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs af fundi vegna vanhæfis, kl. 11:50.

Tekið fyrir erindi frá Kristni Boga Antonssyni og Guðrúnu Pálínu Jóhannsdóttur, Hólavegi 19, bréf dagsett þann 31. ágúst 2014, er varðar umferðaröryggismál gangandi vegfaranda og leikskólabarna, umhirðu, merkingar og ýmis umhverfismál.
Byggðarráð þakkar erindið og samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umhverfisráðs.

Guðrún Pálína kom inn á fundinn að nýju kl. 11:55.