Fjárhagsáætlun 2015: Frá Unni E. Hafstað; tvær ásýndir Dalvíkurbyggðar.

Málsnúmer 201407058

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 706. fundur - 04.09.2014

tekið fyrir erindi frá Unni E. Hafstað Ármannsdóttur og Ellu Völu Ármannsdóttur, dagsett þann 13. júlí 2014, þar sem fram kemur eindregin ósk ábúenda á Böggvisstöðum að Dalvíkurbyggð bæti ásýnd svæðisins við Böggvisstaðaskála sem er í eigu sveitarfélagsins.
Byggðarráð þakkar erindið og samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umhverfisstjóra til skoðunar.