Tillaga um frestun sveitarstjórnarfunda samkvæmt 8. gr., 4. mgr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 206/2013 með síðari breytingum.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Málsnúmer 201406062

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 260. fundur - 18.06.2014

Forseti lagði fram eftirfarandi tillögu, dagsett þann 13. júní 2014:
Með vísan til 8. gr. í Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar samþykkir sveitarstjórn að fresta fundum sínum í júlí og ágúst 2014.

Jafnframt er byggðarráði Dalvíkurbyggðar falin fullnaðarafgreiðsla þeirra mála, sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu, sbr. 31. gr. V. kafla Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar, frá og með 19. júní 2014 til og með 31. ágúst 2014.

Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu.