Frá Rætur bs.; Þjónustusamningur sveitarfélaga.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Málsnúmer 201404060

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 258. fundur - 15.04.2014

Tekið fyrir rafbréf frá stjórn Róta bs., dagsett þann 27. mars 2014, er varðar þjónustusamning sveitarfélaga um málefni fatlaðs fólks skv. 3.gr. samþykkta fyrir byggðasamlagið Rætur bs. Þjónustusamningur lýsir útfærslu þjónustunnar, fjárhagslegri og faglegri umgjörð hennar og er meðfylgjandi. Óskað er eftir afgreiðslu sveitarstjórnar á samningnum.

Til máls tóku:
Svanfríður Inga Jónasdóttir.
Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum þjónustusamninginn eins og hann liggur fyrir.