Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2014, samanburður við áætlun.

Málsnúmer 201404041

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 695. fundur - 10.04.2014

Með fundarboði byggðarráðs fylgdi samantekt sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs er sýnir áætluð framlög Jöfnunarsjóðs samkvæmt fjárhagsáætlun 2014 í samanburði við endurskoðaða áætlun Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um framlög 2014, sbr.3. liður hér að ofan.

Ef gert er ráð fyrir að tekjujöfnunarframlagið verði samkvæmt áætlun, en áætlað framlag frá JS liggur ekki fyrir, þá eru áætluð framlög um 11 m.kr. undir áætlun sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.