Frá leikskólastjóra Kátakots og Krílakots; Beiðni um viðauka vegna uppþvottavélar fyrir Kátakot.

Málsnúmer 201404039

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 695. fundur - 10.04.2014

Tekið fyrir erindi frá leikskólastjóra, bréf dagsett þann 7. apríl 2014, þar sem vísað er til bréfs til byggðarráðs þann 3. september 2013 þar sem fram kom að uppvöskunarvél í Kátakoti var orðin lúin og spurning hversu lengi hún myndi endast. Nú hefur vélin gefið upp öndina og þurfti leikskólastjóri að fjárfesta í nýrri vél að upphæð kr. 317.726. Leikskólastjóri óskar því eftir viðauka við fjárhagsáætlun vegna þessa.
Byggðarráð samþykkir með 2 atkvæðum að veita leikskólastjóra heimild til að kaupa vélina en frestar afgreiðslu hvað varðar beiðni um viðauka.