Frá innanríkisráðuneytinu; fundur um frumvörp að breytingum á umdæmum sýslumanna og löreglu 14. febrúar s.l.

Málsnúmer 201402066

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 691. fundur - 20.02.2014

Föstudaginn 14. febrúar s.l. voru fulltrúar sveitarfélaga í Eyþingi, ásamt stjórn Eyþings, boðaðir til fundar á vegum innanríkisráðuneytisins um frumvörp að breytingum á umdæmum sýslumanna og lögreglu.

Jóhann Ólafsson og Anna Guðný Karlsdóttir sóttu fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar. Jóhann gerði byggðaráði grein fyrir fundinum.
Lagt fram til kynningar.

Valdís Guðbrandsdóttir vék af fundi kl. 10:28.