Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Gagnagátt frá OneSystems; kaup og innleiðing.

Málsnúmer 201402054

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 691. fundur - 20.02.2014

Tekið fyrir minnisblað sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 18. febrúar 2014, þar sem lagt er til kaup á Gagnagátt frá OneSystems, en ekki er gert ráð fyrir þessari viðbót í starfs- og fjárhagsáætlun 2014. Óskað er heimildar til að nýta hluta af fjárhæð til kaupa og innleiðingar á Gagnagátt af nýkaupaheimild á deild 21-40 samkvæmt starfs- og fjárhagsáætlun 2014 í stað tölvubúnaðar sem ekki þarf að festa kaup á.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni.