Reglur um styrk á móti fasteignaskatti til félaga og félagasamtaka, endurskoðun 2014.

Málsnúmer 201401030

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 687. fundur - 09.01.2014

Með fundarboði byggðarráðs fylgdi tillaga að reglum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka fyrir árið 2014. Ekki eru gerðar tillögur um efnislegar breytingar frá fyrra ári.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum reglurnar eins og þær liggja fyrir.