Frá Eyþingi; Skipan í fulltrúaráð Eyþings.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Málsnúmer 201311223

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn - 251. fundur - 19.11.2013

Tekið fyrir erindi frá Eyþingi, bréf dagsett þann 4. nóvember 2013, er varðar skipun í fulltrúarráð Eyþings. Fram kemur að Dalvíkurbyggð skipar 2 fulltrúa. Einnig er óskað eftir að skipaður verði varafulltrúi fyrir hvern skipaðan aðalfulltrúa.

Til máls tók;
Forseti sveitarstjórnar sem leggur fram eftirfarandi tillögu:
Aðalmenn
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Anna Guðný Karlsdóttir.

Varamenn:
Guðmundur St. Jónsson.
Óskar Óskarsson.
Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því ofangreind réttkjörin.