Frá K. Boga Antonssyni og Guðrúnu Pálínu Jóhannsdóttur; Fjárhagsáætlun 2014; ýmislegt.Til kynningar / afgreiðslu.

Málsnúmer 201307082

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 672. fundur - 05.09.2013

Undir þessum lið vék af fundi Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, vegna vanhæfis kl.10:55 til kl. 11:00.

Tekið fyrir erindi frá K. Boga Antonssyni og Guðrúnu Pálínu Jóhannsdóttir, bréf dagsett þann 30. júlí 2013, er varðar meðal annars gangstétt, umhirðu og merkingar í kringum Hólaveg 19.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umhverfisráðs til skoðunar.

Umhverfisráð - 242. fundur - 11.09.2013

Innkomið erindi frá húseigendum Hólvegar 19, Dalvík vegna fjárhagsáætlunar 2014.
Umhverfisráð tekur vel í erindið varðandi gangstétt og gangbraut og setur verkefnið á framkvæmdarlista 2014. Að öðru leyti þakkar ráðið góðar ábendingar.