Frá sveitarstjóra; Íbúðir í Dalvíkurbyggð; minnisblað.

Málsnúmer 201307030

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 668. fundur - 11.07.2013

Tekið fyrir minnisblað sveitarstjóra, dagsett þan 27. júní 2013, er varðar fund með Ágústi Kr. Björnssyni, sviðsstjóra eignasvið Íbúðalánasjóðs, en Ágúst Kr. kom miðvikudaginn 26. júní s.l. í heimsókn eftir að hafa verið í sambandi við sveitarstjóra um stöðu íbúða sjóðsins í sveitarfélaginu. Umsjónarmaður fasteigna sat fund með honum ásamt sveitarstjóra.
Lagt fram.