Reglur um götusölu og markaði; gjaldtaka vegna markaðar á Fiskidaginn mikla.

Málsnúmer 201306078

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 668. fundur - 11.07.2013

Með fundarboði byggðarráðs fylgdu gildandi reglur Dalvíkurbyggðar um götusölu og markaði sem staðfest var 29. júlí 2011. Á 589. fundi bæjarráðs þann 29. júlí 2011 var jafnframt samþykkt leyfisgjald að upphæð kr. 2.000.

Taka þarf ákvörðun um gjaldtöku vegna útimarkaðar á Fiskidaginn mikla fyrir árið 2013 en árið 2012 var gjaldið óbreytt eða kr. 2.000.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að gjaldið 2013 verði kr. 5.000.