Frá innanríkisráðuneytinu; Alþingiskosningar 2013; kjörskrá.

Málsnúmer 201304027

Vakta málsnúmer

Byggðaráð - 660. fundur - 11.04.2013

Tekinn fyrir rafpóstur frá innanríkisráðuneytinu, dagsettur þann 9. apríl 2013, þar sem fram kemur að ráðuneytið vill minna sveitarfélög á að kjörskrá vegna kosninga til Alþingis sem fram eiga að fara laugardaginn 27. apríl 2013 skulu lagðar fram eigi síðar en miðvikudaginn 17. apríl 2013.

Á fundinum var lögð fram kjörskrá fyrir Dalvíkurbyggð.
Samkvæmt fullnaðarumboði frá sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkir byggðarráð framlagða kjörskrá samhljóða með 3 atkvæðum.