Umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús í landi Ytri-Haga, Árskógsströnd.

Málsnúmer 201212005

Vakta málsnúmer

Umhverfisráð - 233. fundur - 05.12.2012

Gunnar Leifsson, k.t. 131288-4259, óskar leyfis að byggja einbýlishús samkvæmt framlögðum byggingarnefndarteikningum sem unnar eru af Hauki Haraldssyni, byggingartæknifræðingi.
Umhverfisráð samþykkir framlagðar byggingarnefndarteikningar og er framkvæmda- og byggingarleyfi veitt. Umhverfisráð getur ekki samþykkt vegtengingu við þjóðveg 82 en bendir á að eðlilegt er að samnýta heimreið að Syðri-Haga.