Frá Sýslumanninum á Akureyri;Fosshótel - Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi.

Málsnúmer 201209089

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Dalvíkurbyggðar - 637. fundur - 04.10.2012

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Akureyri, bréf dagsett þann 18. september 2012, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Fosshótela ehf. kt. 530396-2239, um rekstrarleyfi samkvæmt gististaðaflokki V en um er að ræða Fosshótel Dalvík Skíðabraut 18, 620. Dalvík.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.

Umhverfisráð - 240. fundur - 03.07.2013

Sýslumannsembættið á Akureyri óskar eftir umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi Fosshótels við Skíðabraut.
Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir og felur byggingarfulltrúa að veita jákvæða umsögn um erindið.